Hvort heldur sem þú ert að undirbúa móttöku á skiptifélaga þínum eða að yfirgefa heimili skiptifélaga þíns, höfum við sett saman lista með góðum ráðum til að tryggja farsæl skil.
Skoðaðu heimili þitt út frá sjónarhorni þinna gesta. Er eitthvað smátt sem gæti orðið til einföldunar eða hægðarauka fyrir þá? Virkar allt eins og það á að vera?
Ferðamannaupplýsingar
Heimsæktu upplýsingaskrifstofu ferðamála í þinni heimabyggð og taktu saman upplýsingapakka með bæklingum frá t.d. staðbundnum söfnum, leikhúsum og skemmtigörðum. Ef slík skrifstofa er ekki til staðar, má oft nálgast þessa bæklinga í anddyri hótela, á sundstöðum eða bara búa til skjal með hlekkjum á internetinu.
Gullmolar í nágrenninu
Hugsaðu nágrenni þitt út frá augum skiptifélaga þinna. Hverjar eru staðbundnu perlurnar? Gerðu lista yfir ykkar uppáhalds veitingastaði og deilið upplýsingum um matinn og þjónustuna. Settu einnig inn lista yfir matvöruverslanir og verslunarmiðstöðvar. Á meðal þess besta við heimilaskiptin er að kynnast upplifun heimamanna af svæðinu.
Tryggingar heimilisins
Hafðu samband við tryggingafélagið þitt og vertu viss um að allt sé eðlilega tryggt fyrir þig og þína skiptifélaga. Vertu sérlega gætin ef þið ætlið að skipta á bílum.
Kvikmyndahús í nágrenninu
Flakkaðu um netið og merktu við áhugaverðar heimsíður úr nágrenninu - eins og t.d. menningarhús, svo þínir gestir sjái auðveldlega hvað er í boði á meðan á dvöl þeirra stendur.
It is important to make your home as warm and inviting for your exchange guests as you would for any of your friends. Make sure that your house is clean and ready for their arrival. Remember that you expect the same from your exchange partners. A bottle of wine and some flowers on the table provide a special feeling, both for when you welcome your guests or leaving your exchange home.